Heiðursorðan (L’Ordre des Arts et des Lettre – officier) er æðsta viðurkenning sem veitt er af hálfu hins opinbera í Frakklandi á sviði menningar og lista. Orðan er veitt til þess að heiðra þá sem skara fram úr í list- eða bókmenntasköpun jafnt í Frakklandi sem annars staðar.
Sjón hlaut orðuna laugardaginn 27. febrúar og Hallgrímur 10. mars. Athafnirnar fóru fram í franska sendiherrabústaðnum og það var sendiherra Frakklands, Graham Paul, sem afhenti orðurnar.
Rithöfundasamband Íslands óskar þeim Hallgrími og Sjón til hamingju með viðurkenninguna!