Search
Close this search box.

Bókmenntahátíð í Reykjavík 2017

Dagskrá Bókmenntahátíðar 2017 liggur nú fyrir og má skoða hér.

Bókmenntahátíð í Reykjavík fer fram í þrettánda skipti dagana 6.-9. september. Dagskrá hennar er metnaðarfull og spennandi, en von er á  17 virtum og vinsælum erlendum höfundum, auk þess sem margir helstu höfundar Íslands taka þátt. Meðal erlendu gestanna er hin kóreska Han Kang sem hlaut alþjóðlegu Man Booker-verðlaunin árið 2016 fyrir bókina Grænmetisætuna. Tveir höfundar sem tilnefndir hafa verið til sömu verðlauna, Eka Kurniawan og Jón Kalman Stefánsson, koma fram í sameiginlegu pallborði og ræða fegurð og ljótleika í bókmenntum. Hinn indónesíski Kurniawan, sem er þekktastur fyrir bók sína Fegurð er sár, flytur aðra opnunarræðu hátíðarinnar en hina ræðuna flytur handhafi Íslensku bókmenntaverðlaunanna 2016, Auður Ava Ólafsdóttir.

Af öðrum gestum hátíðarinnar í ár má nefna bandaríska sagnfræðinginn Timothy Snyder, sem sló í gegn síðastliðinn vetur með bók sinni On Tyranny. Lessons from the 20th Century sem hann skrifaði í kjölfar kjörs Donalds Trump í embætti Bandaríkjaforseta. Snyder flytur fyrirlestur Jóns Sigurðssonar hjá Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands og verður einnig í viðtali við Halldór Guðmundsson. Norrænu ljóðskáldin Aase Berg og Maja Lee Langvad lesa upp úr verkum sínum og taka þátt í pallborðsumræðum og Hiromi Kawakami, höfundur skáldsögunnar Stjörnurnar yfir Tókýó, les úr verkum sínum á japönsku. Hinn sænski Fredrik Sjöberg, sem vakti heimsathygli með bók sinni Flugnagildran, og hinn norski Morten Strøksnes, sem m.a. hefur skrifað um hákarlaveiðar úti fyrir Lofoten, ræða saman um manninn og náttúruna, auk þess sem ísraelski rithöfundurinn og kvikmyndaleikstjórinn Etgar Keret og hin ganversk-bandaríska Yaa Gyasi lesa úr bókum sínum og taka þátt í umræðum. Af íslenskum höfundum sem taka þátt má nefna Kristínu Eiríksdóttur, Sigrúnu Pálsdóttur, Bubba Morthens, og Arnald Indriðason en öll lesa þau upp úr væntanlegum jólabókum á hátíðinni.

Auk aðalviðburða hátíðarinnar, sem fara fram í Iðnó og Norræna húsinu, verður ýmislegt annað til gamans gert; í Stúdentakjallaranum verður boðið upp á bókmenntabarsvar og upplestra ritlistarnema við Háskóla Íslands, en einnig mun krikketlið skipað breskum rithöfundum sækja hátíðina heim og kenna bæði íslenskum kollegum sínum og almenningi að spila krikket.

Í ár er jafnframt bryddað upp á þeirri nýbreytni að hefja hátíðina norðan heiða. Tveir höfundar, þær Anne-Cathrine Riebnitzsky frá Danmörku og Esmeralda Santiago frá Púertó Ríkó, taka þátt í upplestrum og umræðum í Hofi á Akureyri áður en dagskrá hefst í Reykjavík. Það er Menningarfélag Akureyrar, ásamt Amtsbókasafninu á Akureyri, sem skipuleggur dagskrána í samstarfi við Bókmenntahátíð í Reykjavík.

Viðburðir Bókmenntahátíðar í Reykjavík eru ókeypis og öllum opnir. Upplestrar fara fram á móðurmáli höfunda og verður þýðingum varpað upp á tjald  jafnóðum. Samtöl fara fram á ensku. Hægt verður að fylgjast með streymi frá viðburðum á heimasíðu hátíðarinnar og víðar.

Bókmenntahátíð í Reykjavík nýtur stuðnings Reykjavíkurborgar, bókmenntaborgar UNESCO, Mennta- og menningarmálaráðuneytisins, Norræna hússins, Félags íslenskra bókaútgefenda, Miðstöðvar íslenskra bókmennta, Íslandsstofu, Norræna menningarsjóðsins, Íslandspóst og fleiri. Þá á hátíðin í samstarfi við Pennann-Eymundsson, Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum, Alþjóðlega miðstöð tungumála og menningar, RÚV og fleiri.

Facebook
Pinterest
LinkedIn
Twitter
Email