Íslensku bókmenntaverðlaunin afhent

Í gærkvöldi, 11. febrúar, afhenti Halla Tómasdóttir forseti Íslands Íslensku bókmenntaverðlaunin og Íslensku glæpasagnaverðlaunin Blóðdropann við hátíðlega athöfn á Bessastöðum. Fjögurra manna lokadómnefnd valdi verkin úr hópi tuttugu bóka sem tilnefndar voru til verðlaunanna í desember á síðasta ári þegar fimm bækur voru tilnefndar í hverjum flokki. Lokadómnefnd skipuðu þau Andri Már Sigurðsson, Ásrún Matthíasdóttir, […]