Pétur Gunnarsson heiðursdoktor

Pétur Gunnarsson rithöfundur, fyrrverandi formaður RSÍ og heiðursfélagi sambandsins var nýverið sæmdur heiðursdoktorsnafnbót við íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands. Pétur hefur skrifað á annan tug skáldsagna, ævisöguleg rit um tvo helstu rithöfunda Íslendinga, rit af sjálfsævisögulegum toga, pistla og þýðingar á öndvegisverkum franskra bókmennta. Hann hefur einnig unnið merkt starf sem dagskrárgerðarmaður í útvarpi og […]