Tilnefning: Tjörnin eftir Rán Flygenring

Rán Flygenring hefur verið tilnefnd til barna- og ungmennabókmenntaverðlauna Vestnorræna ráðsins árið 2026 fyrir bókina Tjörnin! Rán er höfundur bæði texta og mynda. Bókin kom út hjá Angústúru árið 2024 og hefur hlotið ýmsar tilnefningar og verðlaun. Auk Tjarnarinnar eru tilnefnd til verðlaunanna bækurnar Í morgun fari ég aftur at spæla við babba, eftir Færeyinginn […]
Tilnefningar til viðurkenningar Hagþenkis 2026

Tilnefningar til viðurkenningar Hagþenkis voru kynntar í Borgarbókasafninu í Grófinni þann 4. febrúar. Hagþenkir hefur frá 1986 veitt viðurkenningu fyrir fræðirit, námsgögn eða aðra miðlun fræðilegs efnis til almennings. Viðurkenningin verður veitt við hátíðlega athöfn í Þjóðarbókhlöðunni 4. mars. Þessi eru tilnefnd til viðurkenningar Hagþenkis fyrir útgáfuárið 2025: Andri Þorvarðarson fyrir Fjölbraut í 50 ár: Saga Fjölbrautaskólans […]
Andlát: Pétur Bjarnason

Pétur Bjarnason rithöfundur, fyrrverandi fræðslustjóri og varaþingmaður lést þann 30. janúar síðastliðinn. Pétur fæddist á Bíldudal 12. júní 1941 og var því 84 ára gamall. Að loknu kennaraprófi starfaði Pétur við kennslu og síðar skólastjórnun. Hann gegndi starfi fræðslustjóra Vestfjarða um langa hríð og lét til sín taka bæði í félags- og stjórnmálum. Pétur ritaði […]