Höfundakvöld í Gunnarshúsi – 19. október kl. 17.00 – Myndabókin – heima og heiman
Ragnheiður Gestsdóttir rithöfundur og myndlistarmaður flytur erindi í Gunnarshúsi 19. okt. kl. 17. Erindið var flutt á barnabókaþingi í Bratislava nú í september. Um leið verður efnt til fagnaðar vegna útgáfu nýrrar myndabókar Ragnheiðar, Mig langar.
Framtíð bókmennta og íslenskrar tungu – opinn fundur með frambjóðendum allra flokka
Félag íslenskra bókaútgefenda og Rithöfundasamband Íslands bjóða frambjóðendum allra flokka til fundar og pallborðsumræðna um stöðu íslenskra bókmennta og tungumáls. Stjórnandi er Sigmundur Ernir Rúnarsson. Fundurinn verður haldinn miðvikudaginn 18. október næstkomandi í Þjóðmenningarhúsinu kl. 10:00, árdegis. Blikur eru á lofti í bókaútgáfu, örtungan er í útrýmingarhættu og skóla- og héraðsbókasöfn eru svelt af nýjum […]