Nýskráningar í Bókasafnssjóð
Úthlutun vegna afnota á bókasöfnum. Af árlegri fjárveitingu Alþingis fyrir afnot á bókasöfnum er úthlutað til rithöfunda, þýðenda, myndhöfunda og annarra rétthafa, samkvæmt útlánum og afnotum verka þeirra á bókasöfnum. Um úthlutun gilda lög nr. 91/2007 með síðari breytingum og reglur nr. 323/2008. Til að öðlast rétt til úthlutunar úr sjóðnum þurfa höfundar og rétthafar […]
Enginn hlaut Ljóðstaf Jóns úr Vör
Upplýst var á ljóðahátíðinni í Kópavogi í gær að enginn hlyti ljóðstaf Jóns úr Vör að þessu sinni, en þetta er í annað sinn í fjórtán ára sögu ljóðasamkeppninnar sem dómnefnd ákveður að ekkert innsendra ljóða hljóti fyrstu verðlaun en þau voru um 180. Í rökstuðningi dómnefndar, sem skipuð er þeim Gunnþórunni Guðmundsdóttur, prófessor í almennri bókmenntafræði, […]
Fjöruverðlaunin 2015
Fjöruverðlaunin, bókmenntaverðlaun kvenna, voru veitt við hátíðlega athöfn í Höfða 21. janúar 2015. Verðlaunin hlutu: Í flokki fagurbókmennta: Ástin ein taugahrúga. Enginn dans við Ufsaklett eftir Elísabetu Jökulsdóttur Í flokki barna- og unglingabókmennta: Hafnfirðingabrandarinn eftir Bryndísi Björgvinsdóttur Í flokki fræðibóka og rita almenns eðlis: Ofbeldi á heimili – Með augum barna. Ritstjóri Guðrún Kristinsdóttir Þetta í níunda […]