Skáld í skólum 2025

Bókmenntadagskrár fyrir grunnskóla

Þrjár glænýjar og spennandi dagskrár fyrir forvitna nemendur!

Bókmenntadagskrár Höfundamiðstöðvar RSÍ, Skáld í skólum, hafa verið fastur liður í hauststarfi grunnskólanna í tæpa tvo áratugi. Dagskrárnar eru metnaðarfullar og fræðandi. Höfundar koma í heimsókn til að tala um bækur og lestur, sköpun og skrif, ævintýri sögupersóna jafnt sem skapara þeirra og síðast en ekki síst til að smita nemendur af lestrar- og sköpunargleði.

Í ár munu sex höfundar fara í ævintýraleiðangur með nemendum og kennurum um veröld bókmenntanna – leysa ráðgátur, njósna og slökkva bókabrennur!

Þetta vinsæla verkefni hefur fyrir löngu sannað sig sem hvetjandi viðbót við ómetanlegt starf kennara og starfsfólks grunnskólanna í landinu.

Tímabil: 16. október – 19. nóvember 2025

Að auki er hægt að panta dagskrár á öðrum tímum að höfðu samkomulagi við höfundana. Frestur til að panta dagskrár er til föstudagsins 10. október.

Athugið að mikilvægt er að panta sem fyrst þar sem dagskrár geta verið fullbókaðar á tímabilinu.

Allar upplýsingar og pantanir:

 

Dagskrá haustsins

SKÁLD Í SKÓLUM 2025 

Yfirlit yfir eldri dagskrár:

SKÁLD Í SKÓLUM 2006 – 2024