Ljósvakasjóður – umsóknarfrestur til 8. september

Bætur vegna eintakagerðar til einkanota skv. 11.gr. höfundalaga Rithöfundasamband Íslands (RSÍ) og Félag leikskálda og handritshöfunda (FLH) taka við greiðslum frá Innheimtumiðstöð rétthafa (IHM). Greiðslurnar renna í Ljósvakasjóð sem úthlutar til höfunda og þýðenda leiktexta og annarra skáldverka í samræmi við reglur þessar. Greiðsla til handritshöfunda/leikskálda er í formi eingreiðslu og er ekki greitt fyrir endurteknar sýningar á almanaksári. […]