Útgáfusamningur

Undirritaðir

__________________________________________
í samningi þessum nefndur höfundurinn og

__________________________________________
__________________________________________
í samningi þessum nefndur útgefandinn, gera með sér með þeim skilmálum sem að neðan greinir svofelldan samning um útgáfu verksins

a. Áætlaður útgáfudagur verksins er: ______________________________________
b. Lágmarks eintakafjöldi fyrstu útgáfu er ______________________________________
c. Handrit skal afhent eigi síðar en ______________________________________
d. Höfundarlaun í prósentum eru:
___ 23% sbr. ákv. 13. gr.; eftir sölu
___ 16,5% sbr. ákv. 14. gr.; eftir framl. eintökum e. Fyrirframgreiðsla höfundarlauna er ______________________________________
f. Áætlað verðlistaverð verksins er ______________________________________
g. Önnur atriði: ______________________________________
______________________________________
______________________________________
h. Samningurinn er gerður í tvíriti og heldur hvor aðili frumriti.
i. Rísi ágreiningur vegna samningsins má reka mál fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur
j. Samningurinn er undirritaður í votta viðurvist.

Staður og dagsetning ______________________________________

______________________________________
Undirskrift höfundar.

______________________________________
Undirskrift útgefanda.

A. GILDISSVIÐ ÚTGÁFUSAMNINGSINS.

1. gr. Veitt réttindi.
a. Almenn ákvæði.
Höfundurinn afsalar sér hér með til útgefandans í þeim mæli og með þeim skilmálum, sem greindir eru hér á eftir, einkarétti til að framleiða og gefa út á íslensku í bókarformi það verk sem samningur þessi tekur til. Afsalið tekur til réttar til að hagnýta verkið í bókarformi í frumútgáfu (óbundið og/eða innbundið) og endurútgáfu. Útgefandanum er heimilt að vista verkið á rafrænan hátt. Þá er útgefandanum heimilt að heimila þriðja aðila aðgang að hluta verksins á rafrænan hátt enda sé það gert í auglýsingar- og/eða kynningarskyni og án endurgjalds til útgefanda. Höfundurinn skal eiga rétt á upplýsingum um aðgang þriðja aðila að verkinu. Komi til þess að höfundur semji um leikgerð eða kvikmynd eftir verkinu skal tilkynna útgefanda skriflega um slíka samninga þegar þeir eru gerðir og um áætlaðan frumsýningardag þegar hann hefur verið ákveðinn.

b. Safnrit. Óski höfundurinn að taka verkið eða hluta þess upp í safnrit hjá öðrum útgefanda getur hann, ef umfang framlagsins í safnritið er ekki meira en ákveðið er í 17. gr. höfundarlaga, gert það hvenær sem er að því er varðar safnrit til skólakennslu, en að því er varðar önnur safnrit þremur árum eftir lok þess árs er fyrsta útgáfa venjulegrar útgáfu kom út. Óski höfundurinn í öðrum tilvikum eftir því að taka hluta af verki upp í safnrit, skal hann afla samþykkis útgefandans meðan útgáfurétturinn varir. Útgefandinn má ekki binda samþykki sitt skilyrði um fjárhagslega hagsmuni. Vilji útgefandinn taka verkið upp í safnrit, skal hann gera sérstakan samning um það við höfundinn.

c. Hljóðbækur. Sé ekki um annað samið hefur útgefandinn rétt til útgáfu verksins á hljóðbók Haft skal samráð við höfundinn um lestur verksins sem og um mögulegar styttingar á verkinu. Höfundi skal boðið að hlusta á innlestur verksins áður en það er gefið út. Hafi útgefandi ekki nýtt sér réttinn til útgáfu hljóðbókar innan átján mánaða frá útgáfudegi prentaðrar bókar fellur rétturinn til höfundarins að nýju. Komi til útgáfu samkvæmt grein þessari er útgefanda skylt að gefa út minnst 200 eintök og skal ákvörðun um útgáfu og eintakafjöldi tilkynntur höfundi skriflega. Útgefandi ákveður verðlistaverð hljóðbókar.
Höfundarlaun skulu reiknast af verðlistaverði samkvæmt 12. gr. og greiðast samkvæmt 14. gr., af framleiddum eintökum. Aukaeintök til kynningar á verkinu skulu vera 35 og þar af komi 10 í hlut höfundar. Að öðru leyti gilda ákvæði 19. gr. um höfundareintök. Útgefanda er heimilt að gefa út hljóðbók í samstarfi við þriðja aðila en er í slíku tilviki ábyrgur fyrir efndum gagnvart höfundinum.

d. Rafræn útgáfa. Sé ekki um annað samið hefur útgefandi verksins rétt til útgáfu þess á rafrænu formi. Hafi útgefandi ekki nýtt sér þann rétt innan 18 mánaða frá útgáfudegi prentaðrar bókar fellur rétturinn til höfundarins að nýju. Að liðnu þessu tímabili á útgefandi rétt á að höfundur tilkynni honum skriflega um fyrirhugaða rafræna útgáfu og skal hann eiga forgang til útgáfunnar enda takist samkomulag með útgefanda og höfundi um skilmála útgáfunnar innan þriggja mánaða frá móttöku tilkynningarinnar. Að öðrum kosti er höfundi frjálst að ráðstafa réttindum þessum án frekara samráðs við útgefanda. Aðilar skulu semja um skiptingu tekna af rafrænni útgáfu og skal í upphafi miðað við að tekjur af rafrænni útgáfu skiptist jafnt milli útgefanda og höfundar. Tekjur samkvæmt grein þessari skulu að öðru leyti reiknaðar með hliðsjón af ákvæðum 12., 13., 15. og 16. gr. samnings þessa, þ.e. sem söluverð að frádregnum virðisaukaskatti, sölulaunum og afslætti. Við ákvörðun hlutfalls höfundar til hækkunar eða lækkunar skal meðal annars líta til tilkostnaðar útgefanda við útgáfuna og markaðssetningu verksins auk þess sem tillit verði tekið til sanngirnissjónarmiða. Útgefandinn skal leitast við að haga útgáfu verksins þannig tæknilega að sem minnst hætta sé á misnotkun þriðja aðila á höfundarrétti að verkinu og í því skyni skal útgefandi nota viðurkennda tækni hvers tíma. Höfundi er óheimilt, á meðan útgefandi á skilyrtan rétt samkvæmt grein þessari, að veita þriðja aðila aðgang að verkinu á rafrænan hátt í heild sinni hvort sem er gegn gjaldi eða ekki.

e. Útgáfur á erlendum málum. Sé ekki um annað samið er útgefandanum heimilt að hafa forgöngu að því að kynna verkið erlendum útgefendum með útgáfu í huga. Í því skyni er honum heimilt að láta þýða einstaka kafla úr bókinni í samráði við höfundinn og senda erlendum forlögum. Kostnað sem af þessu leiðir skal útgefandi bera. Komi til samnings um erlenda útgáfu samkvæmt grein þessari skal fjórðungur umsaminna ritlauna fyrir útgáfuna koma í hlut útgefanda.

f. Önnur réttindi. Öll önnur réttindi yfir verkinu sem ekki eru undanskilin samkvæmt ákvæðum samnings þessa tilheyra höfundinum.

2. gr. Upplag, prentun og útgáfur. Útgefandinn hefur rétt til að láta framleiða og gefa verkið út í upplagi sem ákveðið er að framan og prenta í ákveðnum eintakafjölda í samráði við höfund ef því verður við komið. Útgefandi skal hverju sinni tilkynna höfundi um nýja prentun eða útgáfu og upplag. Um nýja prentun er að ræða ef verkið er gefið út óbreytt hvað varðar texta, umbrot og/eða útlit. Verði um síðari útgáfur að ræða hefur útgefandinn forgangsrétt að þeim, sbr. 11. gr. samnings þessa. Í hverri nýrri útgáfu/prentun skal greina um hvaða útgáfu/prentun sé að ræða. Sé byrjað að vinna að nýrri útgáfu er útgefandanum skylt að gefa höfundinum kost á að gera breytingar á verkinu sem ekki hafa í för með sér hlutfallslega mikinn kostnað né breyta eðli verksins.

3. gr. Gildistími útgáfusamnings.
Útgáfusamningurinn gildir til loka sjöunda árs frá síðustu útgáfu/prentun eða - svo sem síðar greinir - þar til samningnum er sagt upp eða útgáfusamningurinn fellur niður vegna þess að verkið selst upp eða er eyðilagt. Heimilt er með sérstöku samkomulagi að framlengja útgáfuréttinn til lengri tíma en greint er í 1. mgr. en þó aldrei lengur en í fimm ár í senn. Þegar útgáfurétturinn fellur niður, falla öll réttindi skv. samningnum aftur til höfundarins eða þess sem á höfundarréttinn. Uppgjörskylda útgefandans skv. samningi þessum helst án tillits til niðurfalls útgáfuréttarins. Óski höfundurinn síðar eftir að gefa verkið út á nýjan leik, ber honum fyrst að bjóða útgefandanum það skriflega. Hafi útgefandinn ekki gefið skriflegt svar innan mánaðar fellur tilboðið úr gildi. Ef útgefandinn lýsir ekki vilja til að gefa verkið út á nýjan leik eða ef tilboð um nýja útgáfu leiðir ekki til nýs útgáfusamnings ber höfundinum ekki lengur skylda til að bjóða upprunalegum útgefanda síðari útgáfur.

4. gr. Einkaréttur útgefandans.
Frá og með dagsetningu samnings þessa til útgáfudags verksins er höfundinum óheimilt að birta eða láta birta á prenti, flytja í útvarpi eða sjónvarpi eða á öðrum vettvangi kafla úr handriti bókarinnar, nema fyrir liggi leyfi útgefandans. Höfundurinn hefur ekki rétt til að gefa verkið út á íslensku í bókarformi fyrr en hann hefur endurheimt útgáfuréttinn. Ekki er heimilt án skriflegs leyfis útgefandans að birta verkið í heild eða hluta þess í dagblöðum eða tímaritum á Íslandi fyrstu tvö árin eftir útgáfudag ritverksins. Sama gildir um flutning verksins í heild í útvarpi. Höfundinum er þó heimilt að:
a) Taka verkið upp í heildarútgáfu eða úrval verka sinna þegar liðin eru tíu ár frá því að fyrsta útgáfa verksins kom út, en þó mega aldrei líða minna en tvö ár frá síðustu útgáfu. Þessi tveggja ára takmörkun tekur ekki til skólaútgáfu. Um ljóð skulu gilda fimm ár frá fyrstu útgáfu.
b) Gera samning um að hlutar verksins séu teknir upp í safnrit í samræmi við það, sem nánar greinir í b. lið 1. gr.

5. gr. Framsal útgáfuréttar.
Útgefandinn má ekki framselja útgáfuréttinn skv. samningi þessum til annars útgefanda án samþykkis höfundarins nema um sé að ræða framsal eða eigendaskipti á öllu forlaginu eða hluta af því. Við framsal útgáfuréttar er framseljandi áfram ábyrgur fyrir því að staðið sé við samninginn. Þó getur höfundurinn neitað að samþykkja framsal til útgáfufyrirtækis sem ekki telst jafn mikils virt og útgáfufyrirtæki það sem hyggst framselja útgáfuréttinn eða hefur reynst hafa einhverja stjórnmálalega eða trúarlega tilhneigingu sem höfundurinn sættir sig ekki við.

B. HANDRIT OG PRÓFARKIR.

6.gr. Handrit.
Fullgert handrit afhendist við undirskrift samnings þessa fyrir þann tíma sem að framan greinir. Við afhendingu skal handritið vera á tölvutæku formi. Að öðru leyti skal handritið vera þannig að ekki falli aukakostnaður á útgefandann vegna óskýrleika. Hafi handritið ekki verið afhent fyrir umsaminn tíma og í fyrrgreindu ástandi skal útgefandinn gefa höfundinum frest í minnst fjórtán daga og getur síðan rift samningnum, hafi handriti ekki verið skilað að fresti liðnum. Sé samningi rift af framangreindum ástæðum á útgefandinn rétt til bóta úr hendi höfundar fyrir sannanlega útlagðan kostnað. Rafrænt afrit af endanlegum texta verksins skal útgefandi afhenda höfundi eigi síðar en á útgáfudegi verksins.

7. gr. Prófarkalestur.
Höfundinum er rétt og skylt án sérstaks endurgjalds að lesa fyrstu próförk af hverri útgáfu, sem ekki er prentuð eftir varðveittum filmum og plötum. Fari hann fram á að lesa fleiri prófarkir skal honum það heimilt endurgjaldslaust. Að öðru leyti sér útgefandinn um prófarkalestur. Breyti höfundurinn, eftir að verkið hefur verið brotið um, verkinu í svo ríkum mæli, að hafi í för með sér meira en 10% aukinn kostnað við umbrot getur útgefandinn krafist þess að höfundurinn greiði það sem fram yfir þau 10% er. Slíka kröfu skal gera eigi síðar en þremur mánuðum eftir að prófarkir hafa verið afhentar. Ef höfundurinn skilar ekki próförkum innan þriggja vikna skal líta svo á að hann samþykki þær og útgefandanum er þá heimilt að láta prenta verkið eftir að innsláttarvillur hafa verið leiðréttar.

8. gr. Breytingar á handriti.
Eftir að handrit hefur verið samþykkt til útgáfu getur höfundurinn ekki án samþykkis útgefandans gert slíkar breytingar á verkinu að eðli þess eða stærð breytist verulega við það. Vilji höfundurinn engu að síður gera slíkar breytingar, á útgefandinn ekki rétt á því að gefa verkið út í óbreyttu ástandi, en getur hins vegar rift samningnum. Sé samningi rift af framangreindum ástæðum á útgefandinn rétt á bótum úr hendi höfundarins fyrir sannanlega útlagðan kostnað við gerð bókarinnar. Útgefandinn ákveður uppsetningu og útlit bókarinnar í samráði við höfundinn. Hafi höfundurinn sérstakar óskir fram að færa varðandi fyrrgreind atriði skal hann koma þeim á framfæri við útgefandann við afhendingu handrits.

C. ÚTGÁFA OG DREIFING.

9. gr. Útgáfuskylda.
Útgefandinn skuldbindur sig til, ef ekki er um annað samið, að gefa verkið út í síðasta lagi átján mánuðum eftir að höfundurinn afhenti fullgert handrit.Verði á þessu vanefndir hefur höfundurinn rétt til að rifta samningi þessum.Útgáfurétturinn fellur þá aftur til höfundarins, sem hefur rétt til að halda þeim greiðslum sem hann hefur fengið sem höfundarlaun fyrir verkið. Hafi dráttur valdið höfundinum sannanlegu tjóni, sem ekki er að fullu bætt með þeim höfundarlaunum, er hann hefur þegar fengið greidd, á hann að auki rétt til skaðabóta.

10. gr. Dreifing verksins.
Útgefandinn skuldbindur sig til þess að sjá um kynningu verksins og dreifingu á markaði á tíðkanlegan hátt og að öðru leyti með hliðsjón af eðli verksins.

11. gr. Nýjar útgáfur. Þegar verkið er uppselt eða útgefandinn hefur ekki prentað verkið að nýju eða notað rétt sinn til að gefa verkið út í nýrri útgáfu, getur höfundurinn skriflega krafið útgefandann um að taka afstöðu til þess hvort hann hyggst gefa verkið út eða endurprenta það. Hafi útgefandinn ekki undirritað skuldbindingu innan þriggja mánaða um að gefa verkið út í nýrri útgáfu frá því að honum barst ósk um það, er höfundinum heimilt að rifta samningnum. Fellur þá jafnframt niður annar réttur útgefandans. Verkið telst uppselt þegar í mesta lagi fimmtíu eintök eru eftir í birgðum, óháð því hvar þau liggja.

D. FJÁRHAGSLEGIR SKILMÁLAR.
12. gr. Almenn ákvæði um höfundarlaun. Höfundarlaun skal ákveða sem hundraðshluta af verðlistaverði útgefanda. Með verðlistaverði er átt við það verð, án virðisaukaskatts, sem útgefandi tilkynnir viðskiptamönnum sínum á útgáfutíma bókar. Verðlistaverð getur verið með tvennum hætti:
a) Þegar um er að ræða bækur sem seldar eru í bókabúðum eða hjá öðrum hefðbundnum söluaðilum bóka: Heildarsöluverð bóka frá forlagi til endurseljanda án vsk.
b) Þegar um er að ræða bækur seldar í farandsölu eða símasölu á vegum útgefanda: Smásöluverð bóka án vsk. að frádregnum 30% sölulaunum. Heimilt er útgefanda að veita smásölum afslátt af verðlistaverði og/eða lækka verð bóka sem seldar eru í farandsölu eða símasölu, enda ráðist afslátturinn af viðskiptalegum hagsmunum samningsaðila. Höfundarlaun samkvæmt lið a) miðast þá við verðlistaverð að frádregnum afslætti og höfundarlaun samkvæmt lið b) af lækkuðu verði án vsk. að frádregnum 30% sölulaunum. Útgefandi ákveður verðlistaverð bókarinnar. Höfundurinn getur valið á milli höfundarlauna eftir sölu (13. gr.) eða höfundarlauna af framleiddum eintökum (14. gr.). Þegar um er að ræða tvo eða fleiri sem eiga rétt til þóknunar (t.d. samtalsbækur) skal kveða á um það í samningnum við báða (alla) aðila hvert þóknunarhlutfall hvers sé. Þegar um er að ræða myndskreytta útgáfu fyrir fullorðna er heimilt að lækka höfundarlaun í sama hlutfalli og nemur umfangi af prentfleti bókarinnar allt að 50%. Skerðingarákvæði þetta á því aðeins við að umfang myndskreytingar nemi minnst 7% af prentfleti bókar. Ef myndskreyting er meira en 50% af prentfleti bókarinnar skal semja um þóknun sérstaklega.

13. gr. Höfundarlaun eftir sölu.
Höfundarlaun skulu nema minnst 23% af endanlegu söluverði bókanna frá útgefanda að frádregnum vsk. og sölulaunum samkvæmt 12. gr. ef um er að ræða. Greiðslu höfundarlauna skal hagað þannig að ¼ hluti (einn fjórði hluti) af áætluðum höfundarlaunum fyrir lágmarkseintakafjölda fyrstu útgáfu greiðist við undirskrift samnings, eða - ef handrit er afhent síðar - við afhendingu þess, er skipta má í þrjár jafnar mánaðargreiðslur. Innan þriggja mánaða frá útgáfudegi skal útgefandinn hafa greitt helming áætlaðra höfundarlauna fyrir útgáfuna.

14. gr. Höfundarlaun af framleiddum eintökum.
Höfundarlaun af framleiddum eintökum eru höfundarlaun sem reiknast af fjölda fullunninna eintaka og skulu nema minnst 16,5% af verðlistaverði bókar. Greiðslur skulu vera:
a) Við afhendingu handrits greiði útgefandinn höfundi ¼ hluta (einn fjórða hluta) af áætluðum höfundarlaunum lágmarkseintakafjölda fyrstu útgáfu.
b) Eftirstöðvar áætlaðra höfundarlauna greiðast innan fjögurra mánaða frá útgáfudegi. Fyrir það sem þá kann að verða eftir í örkum greiðast höfundarlaun innan fjögurra mánaða frá því að bækurnar eru fullunnar í bókbandi.

15. gr. Réttur útgefanda til verðbreytinga.
Útgefanda er heimilt hverju sinni að breyta upphaflegu verðlistaverði bókarinnar og/eða því verði sem verkið er boðið til sölu á í farandsölu og/eða símasölu á vegum útgefandans. Við verðákvarðanir skal útgefandi hafa sameiginlega hagsmuni samningsaðila að leiðarljósi varðandi markaðssetningu og sölutekjur af verkinu. Útgefanda er heimilt að selja bókina í bókaklúbbi þegar hann ákveður. Óheimilt er að bjóða bókina til sölu á bókamarkaði fyrr en tvö ár eru liðin frá útgáfudegi hennar.

16. gr. Uppgjör. Fyrir hvert almanaksár er útgefandanum skylt í síðasta lagi hinn 1. júní næsta ár á eftir að láta höfundinum í té uppgjör. Uppgjör skal vera greinilegt og í alla staði auðskilið og undirritað af útgefandanum. Í því skulu vera upplýsingar um stærð bókaleifa við upphaf og lok síðasta almanaksárs og um sölu á árinu, allar birgðabreytingar og gölluð eintök sem ekki greiðast höfundarlaun af, svo og greiðsla höfundarlauna ef um inneign höfundar er að ræða. Við uppgjör höfundarlauna miðast greiðslur við endanlegt söluverð bókanna hverju sinni að teknu tilliti til verðbreytinga, afsláttar og sölulauna. Óski höfundur eftir því skulu uppgjör greina söluverð og fjölda seldra eintaka á hverju söluverði.

17. gr. Réttur höfundarins til eftirlits. Ef höfundurinn hefur í síðasta lagi þremur mánuðum eftir móttöku uppgjörs óskað skriflega eftir því, skal útgefandi senda honum staðfestingu löggilts endurskoðanda sem sýni hvort uppgjörið er gert á réttan hátt og í samræmi við bókhald útgefandans, enda beri höfundurinn allan kostnað af ráðstöfun þessari nema í ljós komi ágallar á fyrra uppgjöri.

18. gr. Staðfesting á eintakafjölda.
Útgefandanum er skylt við uppgjör að láta höfundinum í té skriflega yfirlýsingu eða afrit reikninga prentsmiðju og bókbandsstofu, sem annast hefur gerð bókarinnar, um prentaðan, heftan og bundinn eintakafjölda, sbr. 37. gr. höfundarlaga.

19. gr. Eintök höfundar.
Af fyrstu útgáfu fær höfundur 25 eintök án endurgjalds. Af hverri nýrri útgáfu eða prentun fær höfundur 10 eintök án endurgjalds. Óski höfundur þar fyrir utan að kaupa eintök af verkinu greiðir hann verðlistaverð að teknu tilliti til afsláttar sem þá er veittur við sölu bókarinnar.

20. gr. Frjáls eintakanot útgefandans.
Af hverri útgáfu hefur útgefandi rétt til að nota 10% (tíu prósent) af 1000 eintökum sem höfundar- og kynningareintök, 8% (átta prósent) af 1500, 7% (sjö prósent) af 2000 og 2% (tvö prósent) af öllum eintökum umfram 2000 en þó aldrei fleiri en 200 eintök allt í allt og ekki færri en 100.

21. gr. Förgun.
Útgefanda er heimilt að farga þeim eintökum af bókinni sem hann á í birgðum þegar liðin eru tvö ár frá útgáfudegi bókarinnar. Útgefandi skal tilkynna höfundi slíka ákvörðun skriflega eigi síðar en tveimur mánuðum áður en hún kemur til framkvæmda. Óski höfundurinn eftir því skulu honum látin í té án endurgjalds allt að 50 eintök af bókinni sem honum er þó óheimilt að selja. Útgefandi má auðkenna þessi eintök sérstaklega. Komi til förgunar samkvæmt ákvæði þessu fellur útgáfusamningurinn þegar úr gildi. Jafnframt er útgefanda heimilt að farga hluta birgða eftir að tvö ár eru liðin frá útgáfudegi bókar. Skal slík ákvörðun tilkynnt höfundi skriflega og förgun fara fram á sannanlegan hátt þannig að ekki verði ágreiningur um fjölda þeirra eintaka sem fargað var. Förgun á hluta af upplagi hefur ekki áhrif á réttindi og skyldur aðila samkvæmt útgáfusamningi þessum og má ekki hafa áhrif á mögulega markaðssetningu og sölumöguleika verksins.

22. gr. Lok uppgjörsskyldu.
Skyldu útgefandans til að afhenda uppgjör og til að greiða höfundarlaun lýkur frá og með því uppgjörstímabili þegar eintakafjöldi í birgðum er kominn í fimmtíu eintök eða minna. Af þeim eintökum sem þá eru í birgðum verða ekki greidd höfundarlaun enda komi ekki til nýrrar prentunar eða útgáfu. Þetta gildir hvort sem bókaleifar eru seldar, lækkaðar í verði eða eyðilagðar.

E. ÖNNUR ATRIÐI.

23. gr. Merking. Í öllum eintökum verksins skal vera höfundaréttartákn það, sem lýst er í grein III. í Alþjóðasamningnum um höfundarétt (Genfarsáttmálanum) ásamt nafni höfundarins og ártali fyrstu útgáfu. Merkingin skal vera svohljóðandi:

© Nafn höfundar eða rétthafa, fyrsta útgáfuár, 2., 3., o.s.frv. útgáfa.

Bók þessa má ekki afrita með neinum hætti, svo sem ljósmyndun, prentun, hljóðritun eða á annan sambærilegan hátt, að hluta eða í heild, án skriflegs leyfis höfundar og útgefanda.

Prentunarstaður og ár.

Merkingunni skal þannig fyrir komið og á þeim stað að hún gefi ljóst til kynna hver sé eigandi höfundaréttarins. Einnig skal merking segja til um hver séu réttindi útgefandans.

24. gr. Undanþága á fresti
Fresti þá sem tilgreindir eru í samningi þessum má lengja vegna óviðráðanlegra atvika, sem samningsaðilum verður ekki kennt um, svo sem eldsvoða, verkfalls eða verkbanns, náttúruhamfara, styrjaldar eða annarra sambærilegra atvika.

Til útprentunar





Rithöfundasambandið | Gunnarshúsi | Dyngjuvegi 8 | 104 Reykjavik | s: 568 3190 | fax: 568 3192  |rsi hjá rsi.is  | opið 10.00 - 14.00