Heimildir til ljósritunar

Helstu ákvæði laga og gildandi samninga

Samkvæmt 2.gr. höfundalaga hefur höfundur "einkarétt til að gera eintök af verki sínu og til að birta það í upphaflegri mynd eða breyttri, í þýðingu og öðrum aðlögunum." Þennan einkrétt nota höfundar til að gera útgáfusamning við þá sem hafa hug á að gefa verk þeirra út.

Einkaréttur höfunda til eintakagerðar er takmarkaður með ákvæði í 11.gr. laganna sem heimilar að gerð séu eintök af verki til einkanota eingöngu. Í þessari lagagrein er heimildin þó takmörkuð þannig að ljósritunarstofur mega ekki annast eintakagerðina: "Ákvæði fyrstu málsgreinar veita ekki rétt til ... eftirgerðar verndaðra tónverka og bókmenntaverka, sé leitað til hennar aðstoðar aðila, sem taka slíka eftirgerð að sér í atvinnuskyni."

Samkvæmt gildandi samningi menntamálaráðuneytisins og Fjölís, samtaka rétthafa, er heimiluð viss ljósritun útgefinna verka í skólum, háskólum og öðrum fræðslustofnunum sem reknar eru af ríkinu. Heimild til ljósritunar er takmörkuð með ákvæðum í 6. grein samningsins. Mikilvægustu takmarkanirnar eru þessar:

  • Aðeins má fjölfalda stutta þætti úr hverju riti og 20% hið mesta eða 30 blaðsíður.

  • Fjölföldun er aðeins heimil til bráðabirgðanota og því ekki til geymslu í birgðum.

  • Fjölföldun er eingöngu heimil til viðbótar og fyllingar öðru kennsluefni svo og venjulegum kennslubókum.

Með hugtakinu rit er í samningnum átt við hina efnislegu formheild eða eintak verks, svo sem bók, bækling, tímaritshefti, tölublað, dagblað og nótnahefti. Sams konar takmarkanir eru í samningum sem Fjölís hefur gert við einkaskóla.

Leita ber leyfis hjá rétthöfum til ljósritunar umfram það sem höfundalög og samningar Fjölís heimila. Vilji kennarar eða leiðbeinendur fjölfalda efni til frekari nota, s.s. í textahefti eða æfingahefti sem er notað ár eftir ár og jafnvel selt nemendum þarf til þess leyfi hjá höfundi og útgefanda hans. Ljósritunarsamningar Fjölís heimila ekki slíka notkun. Með sérstökum samningi við rétthafana er hins vegar venjulega hægt að fá heimild til að ljósrita eða gera með öðrum hætti ákveðinn eintakafjölda af hvers konar ritverkum. Þetta gildir einnig um tónverk sem hafa verið gefin út á nótum.

Sjá nánar á heimasíðu Fjölís >>




Rithöfundasambandið | Gunnarshúsi | Dyngjuvegi 8 | 104 Reykjavik | s: 568 3190 | fax: 568 3192  |rsi hjá rsi.is  | opið 10.00 - 14.00