Höfundargreiðsla er verktakagreiðsla nema um annað sé samið sérstaklega.
Lágmarkstrygging fyrir endurflutning skal nema a.m.k. helmingi þeirrar upphæðar sem tilgreind er í 2. grein. Það telst vera frumflutningur leikverks ef það hefur ekki áður verið sýnt hérlendis í atvinnuleikhúsi eða sjónvarpi. Sé um endurflutning að ræða greiðir leikhúsið pr. sýningu þá upphæð sem tilgreind er í 3. grein og með sömu skilmálum eftir að 10.000 aðgöngumiðar hafa verið seldir.
5. gr. Stutt leikverk
Leikrit sem er 70 mínútur eða lengra telst vera heils kvölds verk og sömuleiðis barnaleikrit sem er 60 mínútur eða lengra. Ef fleiri en eitt stutt leikrit mynda heils kvölds sýningu skiptast höfundarlaunin milli höfunda í hlutfalli sem tilgreina skal í samningi. Sé um að ræða stutt verk eða einþáttung, sem leikhúsið sýnir með lækkuðu aðgöngumiðaverði, mega greiðslur skv. 2. grein lækka hlutfallslega.
6. gr. Tilraunaverk og leiksmiðjuverkefni
Í sérstökum tilvikum, þegar um tilraunaverk að leiksmiðjuverkefni er að ræða, skal höfundur fá greitt í hlutfalli við framlag sitt til verkefnisins. Greiðsla til höfundar skal þó aldrei nema lægri upphæð en ¼ lágmarkshöfundargreiðslu sbr. 2. gr. Þegar um leiksögu er að ræða, t.d. fyrir spuna eða danssýningu, skal greiðsla til höfundar aldrei vera lægri en 1/8 af lágmarkshöfundargreiðslu.
7. gr. Þóknun fyrir þýðingar
Fyrir afnotarétt þýðinga eftir félaga í Leikskáldafélagi Íslands og Rithöfundasambandi Íslands greiðir Þjóðleikhúsið:
A. Venjulegt heils kvölds leikrit: kr. 300.000
B. Leikrit, sem krefst meiri vinnu af þýðanda vegna málsfars, stíls eða lengdar: kr. 450.000
C. Leikrit í bundnu máli: kr. 600.000
Lágmarksgjald fyrir þýðingar fellur allt í gjalddaga þegar þýðandi hefur skilað verki sínu til leikhússins. Þegar 15.000 aðgöngumiðar hafa verið seldir greiðir leikhúsið þýðandanum aukaþóknun að upphæð kr. 60.000,-. Fyrir endurflutning leikrits skal þýðandi fá helming ofangreindra greiðslna.
8. gr. Staðfærslur
Ef þýðing felur í sér staðfærslu, þ.e. aðlögun efnis að öðrum aðstæðum en felast í frumtexta, skal þóknun aldrei vera lægri en B liður 6. greinar kveður á um. Ef um verulega staðfærslu er að ræða, þ.e. endursamning efnisins að hluta, skal greiða aukalega 12% af B. lið 7. greinar.
9. gr. Leikgerðir
Leikhúsið skal í öllum tilfellum greiða full höfundarlaun fyrir leikgerðir (sbr. grein 2). Það telst vera leikgerð ef annarri tegund bókmenntaverka er breytt í leikrit. Höfundagreiðsla skiptist milli frumhöfundar og leikgerðarhöfundar samkvæmt hlutfalli sem samið er um sérstaklega. Hafi réttur frumhöfundar fallið úr gildi, rennur hlutfall hans af höfundarlaununum til Leikskáldafélags Íslands. Höfundur leikgerðar skal þó aldrei fá minna en sem nemur 50% af lágmarkshöfundagreiðslu.
10. gr. Sýningar í sjónvarpi
Leikhúsið áskilur sér rétt til að semja við framleiðendur sjónvarpsefnis um sýningu í sjónvarpi á uppfærslum leikhússins að höfðu samráði við höfund.
11. gr. Myndefni úr sýningu
Leikhúsið skal láta höfundi í té a.m.k. 10 góðar ljósmyndir úr sýningunni af myndum þeim sem teknar hafa verið vegna kynningar á verkinu. Auk þess skal höfundur eiga rétt á afriti til einkanota af myndbandsupptöku eða annarri sambærilegri upptöku sem gerð hefur verið af endanlegri sviðssetningu verksins. Heimilt er höfundi að nota allt að 90 sekúndna samfelldan kafla úr slíkri upptöku til kynningar á höfundarverki sínu.
12. gr. Breytingar á launaviðmiðun
Allar greiðslur í samningi þessum taka á samningstímanum mið af breytingum sem verða á launavísitölu frá og með 1. ágúst 2005 samkvæmt útreikningi Hagstofu Íslands og skulu uppfærðar ársfjórðungslega.
13. gr. Gildistími
Samningur þessi er gerður í þremur samhljóða eintökum og heldur hver aðili sínu. Hann gildir frá undirskriftardegi til 1. apríl 2009. Samningurinn endurnýjast sjálfkrafa um eitt ár í senn, hafi enginn aðila látið í ljós skriflega ósk um endurskoðun hans tveimur mánuðum áður en gildistíminn rennur út.
14. gr. Annað
Rísi mál út af samningi þessum má reka það fyrir Bæjarþingi Reykjavíkur og skuldbinda aðilar sig til að mæta með innanbæjarfyrirvara.
Reykjavík, 18. mars 2005. Með fyrirvara um samþykki félagsfunda.
Bókanir með samningi Leikskáldafélags Íslands og Rithöfundasambands Íslands annarsvegar og Þjóðleikhússins hinsvegar:
Bókun 1. Starfslaun
Aðilar samnings þessa eru sammála um að leikhúsið skuli stefna að því að hafa ævinlega leikskáld á starfslaunum, þannig að tólf mánaðarlaunum af opinberri fjárveitingu leikhússins verði varið til starfslaunasamninga leikskálda ár hvert.
Bókun 2. Leikritaútgáfa
Aðilar samnings þessa vilja stuðla að því að ný íslensk leikrit sem leikhúsið sýnir verði jafnan gefin út í tengslum við frumsýningu.
Reykjavík, 18. mars 2005. Með fyrirvara um samþykki félagsfunda.
Til útprentunar