1.gr.
Samningur þessi gildir um greiðslur fyrir flutning í útvarpi á ritverkum sem félagsmenn í Rithöfundasambandi Íslands hafa samið og eiga flutningsrétt að, ef um er að ræða:
a) Bókmenntaverk sem 23. gr. höfundalaga nr. 73/1972 tekur til.
b) Bókmenntaverk sem áður hafa verið birt, og er þá með birtingu átt við hið sama og skilgreint er í 2.gr. 3.mgr. höfundalaga nr. 73/1972 (sbr. þó sérreglur um leikrit í samningi þessum).
c) Frumsamin bókmenntaverk sem ekki hafa áður verið birt hérlendis, önnur en leikrit.
d) Þýðingar bókmenntaverka sem ekki hafa áður verið birtar.
e) Leikrit sem ekki hafa áður verið birt hérlendis.
Áður útgefin eða birt verk
2. gr.
Fyrir áður útgefin verk sem 23. gr. höfundalaga nr.73/1972 tekur til skal greitt sem hér segir:
a) Fyrir frumsaminn skáldskap (í óbundnu máli) kr. (sjá taxta hér að neðan) fyrir hverja byrjaða mínútu sem flutningur tekur.
b) Fyrir þýðingar á skáldskap (í óbundnu máli) kr. (sjá taxta hér að neðan) fyrir hverja byrjaða mínútu sem flutningur tekur.
c) Fyrir bundið mál kr. (sjá taxta hér að neðan) fyrir hverja byrjaða mínútu sem flutningur tekur, þó ekki minna en kr. (sjá taxta hér að neðan). Fyrir ljóðaþýðingar skal greiða sömu fjárhæð og fyrir frumort ljóð.
d) Ef verk er aðlögun annars bókmenntaverks skal heildargreiðsla til rithöfunda fyrir flutning aðlögunarinnar í útvarpi vera hin sama og skv. a eða b lið þessarar gr., ef bæði frumgerð og aðlögun njóta lagaverndar. Leikverk sem unnin eru upp úr skáldsögum, smásögum og/eða sjálfstæð umsköpun sviðsverka skilgreinist sem leikgerð og greiðist með 70% en höfundi frumgerðar greiðast 30%. Aðlögun til útvarpsflutnings, styttingar og minni háttar breytingar á sviðstexta eða öðrum bókmenntaverkum greiðist með allt að 30% en höfundi greiðast aldrei minna en 70%.
Þessi hlutföll gilda nema samkomulag verði um annað milli höfundar frumgerðar og höfundar aðlögunar. Ef frumgerð nýtur ekki lagaverndar skal höfundi aðlögunar og leikgerðar greitt 30-70% af gjaldi skv. a eða b lið, afgangurinn skal renna í Rithöfundasjóð Ríkisútvarpsins.
e) Ef greitt er fyrir styttri flutningstíma en 3 mín. skal greiðslan renna í Rithöfundasjóð Ríkisútvarpsins, en ella til höfundar. Sé um heilt ljóð að ræða rennur greiðsla til höfundar án tillits til flutningstíma.
f) Gjald fyrir tvítekningu, þ.e. endurflutning innan 8 daga skal vera 12% af greiðslu fyrir frumflutning. Heimilar eru þrjár útsendingar af hverri upptöku innan þriggja ára frá fyrsta flutningi og greiðast þá 15% af fyrstu greiðslu fyrir hverja útsendingu. Eftir þrjú ár frá fyrstu útsendingu greiðast 20% fyrir hverja útsendingu. Þetta gildir um allt það efni sem samningurinn tekur til, nema flutning ljóða sem ávallt greiðist fyrir að fullu
g) Útvarpinu er heimilt að hafa upptökur leikrita aðgengilegar á vef sínum í allt að mánuð frá fyrsta útsendingardegi og hverri endurtekningu eftir það án þess að til komi sérstakt gjald. Notaður skal "straumur" við netmiðlunina, eða hverja þá tækni aðra sem best þykir hverju sinni til að tryggja það að ekki sé hægt að hlaða efninu niður.
3. gr.
Fyrir bókmenntaverk sem áður hafa verið birt (sbr. 2. gr. 3. mgr. höfundalaga nr. 73/1972) skal greitt sem hér segir:
a) Fyrir framhaldssögur greiðast kr. (sjá taxta hér að neðan) fyrir hverja mínútu sem flutningur tekur. Framhaldssögur teljast sögur sem eru 60 mín.
í lestri eða lengri (t.d. 2 x 30 mín. eða 3 x 20 mín.). Ef sögu sem er styttri en 60 mín. er skipt í flutningi skal greitt skv. 2. gr. b) Fyrir þýðingar á ritverkum sem a) liður fjallar um, skal greiða kr. (sjá taxta hér að neðan) fyrir hverja mínútu.
c) Fyrir ljóð skal greitt eftir 2.gr. c.
d) Leikrit sem hefur verið prentað telst ekki birt nema það hafi verið flutt í Ríkisútvarpinu eða í atvinnuleikhúsi. Fyrir leikrit sem hafa verið prentuð en ekki birt með þeim hætti sem að ofan segir, skal greiða skv. 5. gr.
Fyrir leikrit sem hafa verið birt, hvort sem þau hafa verið prentuð eða ekki, skal greiða eftir flutningstíma kr. (sjá taxta hér að neðan) fyrir hverja mín. Fyrir framhaldsleikrit sem hafa verið birt skal greiða á sama hátt. Fyrir áður birtar þýðingar leikrita skal greiða sem hér segir:
1) Venjulegt leikrit - kr. (sjá taxta hér að neðan) fyrir hverja mínútu;
2) Leikrit sem krefst meiri vinnu af þýðanda v. stíls eða málfars - kr. (sjá taxta hér að neðan) f. hv. mín. (20% álag);
3) Leikrit í bundnu máli - kr. (sjá taxta hér að neðan) f. hv. mín. (100% álag).
e) Ef áður birt verk er aðlögun annars verks skal farið eftir 2. gr. d um skiptingu þóknunar.
f) Fyrir önnur bókmenntaverk sem áður hafa verið birt skal samið hverju sinni.
Áður óbirt verk
4. gr.
Fyrir bókmenntaverk (önnur en leikrit) sem ekki hafa áður verið birt hérlendis skal greitt sem hér segir:
a) Fyrir frumsaminn skáldskap (í óbundnu máli, þ.m.t. framhaldssögur) kr (sjá taxta hér að neðan) fyrir hverja byrjaða mínútu sem flutningur tekur, þó ekki minna en kr. (sjá taxta hér að neðan)
b) Fyrir þýðingar á skáldskap (í óbundnu máli, þ.m.t. framhaldssögur) kr. (sjá taxta hér að neðan) fyrir hverja byrjaða mínútu sem flutningur tekur.
c) Fyrir bundið mál greiðast kr. (sjá taxta hér að neðan) fyrir hverja byrjaða mínútu sem flutningur tekur, þó ekki minna en kr. (sjá taxta hér að neðan). Fyrir ljóðaþýðingar skal greiða sömu fjárhæð og fyrir frumort ljóð.
Útvarpsleikrit
5. gr.
Fyrir frumsamin leikrit sem flutt eru í útvarpi skal greitt skv. eftirfarandi reglum þegar þau eru fyrst birt: a) Greiðsla skal fara eftir flutningstíma og vera fyrir:
| að - 5 mín. | verk kr. | (sjá taxta hér að neðan) |
| 6 - 10 | " " " | (sjá taxta hér að neðan) |
| 11 - 15 | " " " | (sjá taxta hér að neðan) |
| 16 - 20 | " " " | (sjá taxta hér að neðan) |
| 21 - 25 | " " " | (sjá taxta hér að neðan) |
| 26 - 30 | " " " | (sjá taxta hér að neðan) |
| 31 - 35 | " " " | (sjá taxta hér að neðan) |
| 36 - 40 | " " " | (sjá taxta hér að neðan) |
| 41 - 45 | " " " | (sjá taxta hér að neðan) |
| 46 - 50 | " " " | (sjá taxta hér að neðan) |
| 51 - 55 | " " " | (sjá taxta hér að neðan) |
| 56 - 60 | " " " | (sjá taxta hér að neðan) |
Síðan skal greiða kr. (sjá taxta hér að neðan) fyrir hverja byrjaða mínútu. Fyrir framhaldsleikrit skal ekki greiða byrjunargjald en greiðslan vera kr. (sjá taxta hér að neðan) fyrir hverja mínútu. Um endurflutning framhaldsleikrita fer eftir 3. gr. d.
b) Fyrir áður óbirtar þýðingar leikrita skal greiða sem hér segir:
1) Venjuleg leikrit: kr. (sjá taxta hér að neðan) fyrir hverja mínútu;
2) Leikrit sem krefst meiri vinnu v. málfars, stíls osfrv: kr. (sjá taxta hér að neðan) f.hv.mín. (20% álag);
3) Leikrit í bundnu máli kr. (sjá taxta hér að neðan) f.hv.mín. (100% álag).
c) Ef sögur, sögulegur fróðleikur eða hliðstætt efni er búið til leikræns flutnings án þess að um sé að ræða umsköpun í leikritsform (dramatíseringu) skal greiða kr. (sjá taxta hér að neðan) fyrir hverja mín. sem flutningur tekur.
d) Ef leikrit er aðlögun annars verks skal farið eftir 2. gr. d um skiptingu þóknunar.
e) Ef leikritahöfundur eða þýðandi er viðstaddur æfingar á leikriti sem ætlunin er að flytja í Ríkisútvarpinu, eða vinnur að breytingum á verki sínu að ósk RÚV, skal greiða fyrir slíka vinnu eftir samkomulagi sem gert skal fyrirfram.
f) Jafnskjótt og RÚV hefur ákveðið að taka leikrit til flutnings í útvarpi skal um það gerður samningur milli höfundar og RÚV. Sé ekki annað tekið fram skal RÚV heimill endurflutningur gegn greiðslu skv. öðrum ákvæðum þessa samnings. Um framsal flutningsréttar til útvarpsstöðva í öðrum löndum skal semja við höfund hverju sinni.
g) Greiðslur til höfunda leikrita skv. þessari grein skulu inntar af hendi sem hér segir:
1. Helmingur áætlaðrar fjárhæðar við undirritun samnings skv. f lið þessarar greinar.
2. Þegar verkið er fullbúið til útsendingar skulu eftirstöðvar höfundarlauna greiddar, og að auki skulu þá inntar af hendi greiðslur skv. e lið þessarar greinar. Þó taxtar hækki áður en endanlegt uppgjör fer fram, skal ekki koma álag á greiðslu skv. g lið.
Útgáfa
6. gr.
a) Ríkisútvarpinu er heimilt að gefa út á hljóðbók til kynningar og/eða sölu allt að 300 eintök af frumsömdum og þýddum leikritum sem tekin eru til flutnings, án þess að til komi aukagreiðsla höfundarlauna eða þýðandalauna. b) Höfundi/þýðanda skal tilkynnt um slíka útgáfu verksins með mánaðar fyrirvara. c) Höfundareintök af útgefnu verki skulu vera 20, en eintök þýðanda 10. d) Um útgáfur umfram 300 eintök skal samið sérstaklega með hliðsjón af samningum við bókaútgefendur.
Drög
7. gr.
Samning draga að útvarpsleikritum, að frumkvæði Leiklistardeildar útvarps. a) Panti Leiklistardeild sérstaklega drög (synopsis) að útvarpsleikriti af vissri lengd, greiðast fyrir þau 20% af handriti leikrits sömu lengdar.
b) Óski Leiklistardeild eftir því að handrit verði unnið áfram, greiðast höfundi enn 20% áætlaðra höfundarlauna fyrir fullunnið handrit. Leiklistardeild hefur þó enn heimild á þessu stigi til að hafna handritinu eða samþykkja það til flutnings. c) Ákveði Leiklistardeild að handritið verði fullunnið til flutnings, greiðist fyrir það skv. 5. gr. a) Greiðslur skv. a) og b) liðum 6. greinar eru þá kaupauki fyrir viðkomandi verk. Önnur verk
8. gr.
Um flutning í útvarpi á öðrum bókmenntaverkum en upp eru talin hér að framan, sem félagsmenn í RSÍ eiga flutningsrétt að, fer eftir lögum eða reglum, þar sem um þær er að ræða, eða eftir samkomulagi hverju sinni.
Rithöfundasjóður
9. gr.
Ríkisútvarpið greiðir árlega í Rithöfundasjóð Ríkisútvarpsins kr. (sjá taxta hér að neðan). Þá greiðist í sjóðinn skv. samningi þessum fyrir gjaldskylt efni, ef rétthafar finnast ekki eða krafa þeirra er fyrnd.
Flutningur efnis
10. gr.
Flytji höfundur sjálfur í útvarpi efni sem hann hefur samið eða þýtt, skal honum greidd sama þóknun og leikara væri greidd fyrir flutninginn eftir samningi Félags íslenskra leikara og Ríkisútvarpsins (sjá taxta hér að neðan). (Sjá þó sérstakt ákvæði um bókakynningarþætti í 10. gr.)
Réttindi og skyldur
11. gr.
RÚV ber ekki skylda til að tilkynna höfundum fyrirfram hverju sinni, hvaða ritverk það hyggst taka til flutnings, ef verkið fellur undir 2. gr. samnings þessa. Höfundur (þýðandi) skal tilkynna Ríkisútvarpinu, ef hann vill ekki láta flytja ritverk sín eða tiltekin ritverk sín í útvarpi. Á sama hátt getur höfundur (þýðandi) hlutast til um að verk hans verði ekki flutt í útvarp né þeim stjórnað af mönnum sem hann vill kveðja frá, enda tilkynni hann RÚV allt þetta a.m.k. 8 vikum áður en það tekur gildi. Stendur slíkt bann, uns höfundur (þýðandi) tilkynnir Ríkisútvarpinu annað.
Hafi leikstjóri áhuga á að gera breytingar á fullbúnum texta útvarpsleikrits, skal hann fá samþykki höfundar (þýðanda). Ef annars er ekki getið í samningi, ber Ríkisútvarpinu ekki skylda til að tilkynna höfundi fyrirfram um endurflutning leikrita, sbr. 3. gr d og 5. gr. f, enda getur höfundur ekki, nema hann hafi áskilið sér það sérstaklega, lagt bann við slíkum endurflutningi. Þegar birt er úr bókum í kynningarskyni skal leita samráðs við höfund (þýðanda) um val á sýnishorni, ef því verður við komið. Fyrir lestur slíkra sýnishorna í bókakynningarþáttum skal greiða þeim höfundum (þýðendum) er lesa sjálfir jafnmikið og upplesurum sem annars væru kallaðir til.
Frestur sá sem Ríkisútvarpið hefur til að tilkynna höfundi hvort efni sem hann hefur boðið útvarpinu eða verið fenginn til að semja fyrir það, verður tekið til flutnings, er fjórir mánuðir. Hafi Ríkisútvarpið greitt fyrir verk en ekki flutt það fellur réttur þess niður þegar þrjú ár eru liðin frá kaupunum, og er höfundi (þýðanda) þá heimilt að ráðstafa verkinu annað, eða selja RÚV það aftur. Þetta gildir um allt efni sem samningur þessi tekur til frá undirritun hans.
Verkgreiðsla
12. gr.
Ríkisútvarpið skal tilkynna höfundum mánaðarlega um flutning ritverka þeirra og greiða fyrir, sbr. þó sérákvæði um leikrit í 5. gr. g. RSÍ skal láta RÚV í té félagatal með réttum heimilisföngum og kennitölum. Verkgreiðslu skal inna af hendi eigi síðar en einum mánuði eftir að efnið hefur verið flutt.
Launavísitala
13.gr.
Auk gjalds skv. því sem hér að framan segir, skal greiða verðlagsuppbót skv. launavísitölu sem Hagstofa Íslands gefur út mánaðarlega. Breytingar á töxtum skal gera ársfjórðungslega skv. framangreindri launavísitölu.
14.gr.
Samningur þessi gildir til ársloka 2005 og endurnýjast sjálfkrafa í eitt ár í senn, hafi hvorugur samningsaðili látið í ljós skriflega ósk um endurskoðun hans tveimur mánuðum fyrir tilsettan tíma.
Reykjavík 4. maí 2004.
Prentvæn útgáfa
0.71% hækkun skv. launavísitölu 1.2.2010 - 1.5.2010
| Fyrir frumsaminn skáldskap (í óbundnu máli) hver mínúta kr. | 1.056 |
| Fyrir þýðingar á skáldskap (í óbundnu máli) hver mínúta kr. | 530 |
| Bundið mál, frumsamið og þýtt hver mínúta kr. |
2.451 |
| þó aldrei minna en kr. | 5.692 |
| Framhaldssögur (60 mínútur og lengri) hver mínúta kr | 657 |
| Framhaldssögur, þýðandi og erlendur höfundur hver mínúta kr. | 330 |
| Fyrir áður birt íslenskt leikefni (líka framhaldsleikrit) hver mínúta kr. | 2.290 |
Fyrir áður birtar þýðingar leikrita:
| - venjulegt leikrit hver mínúta kr. | 891 |
| - leikrit sem krefst meiri vinnu af þýðanda hver mínúta kr. | 1.068 |
| - leikrit í bundnu máli hver mínúta kr. | 1.782 |
Bókmenntaverk sem ekki hafa áður verið birt hérlendis önnur en leikrit:
| Skáldskapur í óbundnu.máli, líka framhaldssögur hver mínúta kr. |
2.321 |
| þó aldrei minna en kr. | 7.872 |
| Þýðing á skáldskap, óbundið mál, líka framhaldssögur hver mín. kr. | 1.159 |
| Bundið mál, sama fyrir þýðingar hver mínúta kr. | 5.118 |
| þó aldrei minna en kr. | 15.681 |
Frumsamin leikrit þegar þau eru fyrst birt:
Hljóðvarpsleikrit:
| að 5 mínútum kr. | 68.292 |
| 6 - 10 mínútur kr. | 136.589 |
| 11 - 15 mínútur kr. | 182.490 |
| 16 - 20 mínútur kr. | 212.006 |
| 21 - 25 mínútur kr. | 243.611 |
| 26 - 30 mínútur kr. | 274.106 |
| 31 - 35 mínútur kr. | 304.255 |
| 36 - 40 mínútur kr. | 336.152 |
| 41 - 45 mínútur kr. | 366.606 |
| 46 - 50 mínútur kr. | 397.351 |
| 51 - 55 mínútur kr. | 428.094 |
| 56 - 60 mínútur kr. | 458.825 |
| síðan hver mínúta á kr. |
6.507 |
| Framhaldsleikrit hver mínúta kr. | 4.630 |
| Óprentaðar þýðingar leikrita í flutningi hver mínúta kr. | 2.577 |
| - leikrit sem krefst meiri vinnu af þýðanda hver mínúta kr. | 3.090 |
| - leikrit í bundnu máli hver mínúta kr. | 5.156 |
Ef sögur, sögulegur fróðleikur eða hliðstætt efni er búið til leikræns flutnings án þess að um sé að ræða umsköpun í leikritsform (dramatíseringu) mínúta kr. 2.265. Fyrir endurflutning efnis innan 8 daga í hljóðvarpi skal borga 12% af greiðslu fyrir frumflutning.
Upplestur óbundið mál:
| Að - 10 mínútum kr. | 4.937 |
| 11 - 15 mínútur kr. | 5.673 |
| 16 - 20 mínútur kr. | 6.409 |
| 21 - 25 mínútur kr. | 7.137 |
| 26 - 30 mínútur kr. | 7.923 |
| Síðan hver mínúta | 168 |
Framhaldslestrar:
| Að - 15 mínútum kr. | 4.184 |
| 16 - 20 mínútur kr. | 4.937 |
| 21 - 25 mínútur kr. | 5.673 |
| 26 - 30 mínútur kr. | 6.409 |
| Síðan hver mínúta | 166 |
| Bundið mál að 10 mínútum | 6.256 |
| síðan hver mínúta | 390 |
Lesi rithöfundur sex ljóð eða fleiri, sem flutt eru jafnmarga daga, greiðist sá lestur með tvöföldum taxta.