English
Fréttir og auglýsingar

22. júní 2010

Translation, History, Literary Culture. Nordic Perspectives

Bókmennta- og listfræðastofnun stendur fyrir ráðstefnu um þýðingar, menningu og bókmenntasögu dagana 25.-26. júní næstkomandi. Ráðstefnan er haldið í samvinnu við Árósaháskóla, Gautaborgarháskóla, Fróðskaparsetrið í Færeyjum, Háskólann í Helsinki og Óslóarháskóla.

Á ráðstefnunni halda 19 fyrirlesarar erindi og eru viðfangsefnin af ýmsum toga. Fjallað verður um einstakar þýðingar, þátt þýðinga í bókmenntasögunni, þýðingar milli ólíkra menningarsvæða og allt þar á milli.

Ráðstefnan er öllum opin en þátttakendur eru vinsamlegast beðnir um að skrá sig. Sjá nánar á heimasíðu Hugvísindastofnunar: http://www.hugvis.hi.is

Til baka


Rithöfundasambandið | Gunnarshúsi | Dyngjuvegi 8 | 104 Reykjavik | s: 568 3190 | fax: 568 3192  |rsi hjá rsi.is  | opið 10.00 - 14.00