English
Fréttir og auglýsingar

21. júní 2010

Blóðdropinn

18. júní var Blóðdropinn, viðurkenning Hins íslenska glæpafélags, afhentur í aðalsafni Borgarbókasafnsins. Að þessu sinni hlaut verðlaunin Helgi Ingólfsson fyrir sögu sína, Þegar kóngur kom. Dómnefndina skipuðu Anna R. Ingólfsdóttir þýðandi, Ingvi Þór Kormáksson bókavörður og tónlistarmaður og Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra.  Nefndin komst að einróma niðurstöðu eftir langa yfirlegu og vangaveltur.

Tíu bækur bárust nefndinni. Eftir heilmikið japl og jaml og fuður, stóðu eftir fjórir titlar. Við verðlaunaafhendinguna komst Anna Ingólfsdóttir m.a. svo að orði:

„Í byrjun júní var svo efnt til ískaldrar atkvæðagreiðslu eftir þaulreyndu útsláttarkerfi, í síma þar sem menntamálaráðherra hafði mjög lítinn tíma aflögu í þinglok - ég heima með vitni mér við hlið að því sem ég skrifaði og Katrínu og Ingva Þór hvort í sínum símanum. Sem endaði með: Helgi Ingólfsson, þrjú atkvæði, af þremur mögulegum.

Kostir sögu Helga að okkar mati var sérstaða og frumleiki efnisins, það að flétta skáldskap inn í sögu Íslands. Þarna lifna við sögufrægir menn í öðru ljósi, viðburðir svo sem konungskoman með sínum kostulegu veislum og skrúðgöngum, og ekki síst vakti umstang og vafstur þeirra sem önnuðust prótókollið áhuga og kátínu lesanda. Og fiktið við fallbyssuna. Svona smáatriði sem geta haft áhrif á söguna.

Reykjavík birtist fyrir hugskotssjónum þeirra, sem kannski eru ekki alltaf að velta fyrir sér sögunni, vegna ítarlegra lýsinga á staðháttum. Smæð bæjarins. Fjölskrúðugt mannlífið í Kvosinni. Munur ríkra og fátækra, munur þekkingar og fáfræði. Hégóma og látleysis. Og ekki spillti að sagan er skemmtileg aflestrar.

Með hrífandi léttleika bregður Helgi ljósi á persónur á einkar næman og nærfærinn hátt. Hvort sem persónur koma mikið eða lítið við sögu skila þær sér allar til lesanda og vil ég helst nefna til unga manninn Móritz á mótunarárum sínum og vísindamanninn Hjaltalín landlækni. Siggu tólf, unga konu á uppleið úr fátæktinni, föður hennar, Torfa og svo bróður Jón Sigurðsson, sjálfstæðishetjuna. Og síðast en ekki síst nemendur og kennara í Lærða skólanum með Gest Pálsson, Halldór Kr. Friðriksson og Jón Árnason í forgrunni.

Í sögunni Þegar kóngur kom er aðstæðum þessa fólks lýst og hún minnir okkur á að allir, háir sem lágir, lúta mannlegum hvötum.

Til hamingju, Helgi“

Verðlaunabókin kom út hjá Ormstungu 2009.

Aðrar tilnefndar bækur voru:

Fimmta barnið eftir Eyrúnu Ýr Tryggvadóttur
Fölsk nóta eftir Ragnar Jónasson
Horfðu á mig eftir Yrsu Sigurðardóttur
Hyldýpi eftir Stefán Mána
Nektarmyndin eftir Helga Jónsson
Rúnagaldur eftir Elías Snæland Jónsson
Sólstjakar eftir Viktor Arnar Ingólfsson
Spor eftir Lilju Sigurðardóttur
Svörtuloft eftir Arnald Indriðason

Þetta er í fjórða skiptið sem Blóðdropinn er veittur. Ævar Örn Jósepsson hlaut verðlaunin árið 2009 fyrir Land tækifæranna, Arnaldur Indriðason 2008 fyrir Harðskafa og Stefán Máni 2007 fyrir Skipið.

Handhafi Blóðdropans verður fulltrúi Íslands í samkeppninni um Glerlykilinn 2011, norrænu glæpasagnaverðlaunin sem veitt eru af Skandinaviska Kriminalsällskapet (SKS) fyrir bestu norrænu glæpasöguna. Samtökin voru stofnuð 1991 í Humlebæk í Danmörku og Glerlykillinn var veittur í fyrsta skipti ári síðar. Árið 2001 var Ísland með í fyrsta skipti og Glerlykillinn hefur tvisvar fallið í skaut Íslendingum, í bæði skiptin Arnaldi Indriðasyni, 2002 fyrir Mýrina og 2003 fyrir Grafarþögn.

Til baka


Rithöfundasambandið | Gunnarshúsi | Dyngjuvegi 8 | 104 Reykjavik | s: 568 3190 | fax: 568 3192  |rsi hjá rsi.is  | opið 10.00 - 14.00