|
Margt í boði
|
||
|
|||
|
|
|||
|
Skólaheimsókn er spennandi bæði fyrir höfunda og nemendur. Best er að nemendurnir hafi lesið eða hlustað á eitthvert af verkum höfundarins áður en af heimsókn verður svo áhugi sé þegar vakinn. Rithöfundurinn spinnur yfirleitt sinn þátt í heimsókninni og tekur sér tíma til að hlusta á krakkana og svara spurningum þeirra. Í tengslum við höfundaheimsókn er líka hægt að virkja nemendur, t.d. að þeir fái að segja sögur, yrkja ljóð eða taka þátt í upplestri/leiklestri með höfundinum. Oft eru höfundaheimsóknir líka hvetjandi fyrir kennarana, sem geta tekið upp þráðinn þar sem höfundurinn hættir og haldið áfram að vinna með nemendunum.
rithöfundaheimsókn skerpir
Mörgum finnst gaman að heyra höfund lesa úr verki sínu, segja frá tilurð þess og ræða um það. Einnig hafa sumir höfundar tileinkað sér munnlega frásögn sem sérgrein. Höfundum er mikilvægt að hitta lesendur, hvort sem er í skóla, á vinnustað, bókasafni eða kaffihúsi. Þar gefst tækifæri til að gera efninu alveg sérstök skil og er stundum haft á orði að með þeim hætti verði lengst komist í að brúa bilið milli höfundar og lesanda. rithöfundaheimsókn er í senn gefandi og krefjandi!
|
|||
|
|
|||
|
Ljóðskáld leika sér að tungumálinu og vinna hvert með sínum hætti. Ljóð vekja til umhugsunar og opna nýja heima. Ljóðasmiðja laðar fram sköpunargáfu hjá börnum og fullorðnum og kennir þeim að tjá sig með nýjum hætti. Skáldin eru að sjálfsögðu ómissandi á bókmenntadögum og í ljóðadagskrám.
skáldaheimsókn hvetur
![]() |
|||
![]() |
Höfundamiðstöðin hefur milligöngu um að finna réttu höfundana til að skrifa kynningartexta, tækifærisljóð, söngtexta, blaðagreinar, smásögur, stutta leikþætti eða semja skemmtidagskrár. |
||
|
mikilvægt samstarf Höfundamiðstöðin geymir upplýsingar um höfunda og dagskrár af ýmsu tagi. Í gegnum tíðina hefur reynst mikilvægt að hafa gott samstarf við skóla, bókasöfn, félagasamtök, menningarnefndir, stofnanir, fyrirtæki og auglýsingastofur. Sjáið taxta Höfundamiðstöðvarinnar hér.
|
|||
|
Vefsíðuhönnun: Anna Heiða Pálsdóttir. Unnið eftir bæklingi R.S.Í. sem Áslaug Jónsdóttir hannaði. Allar teikningar eftir Áslaugu Jónsdóttur © 2002. |
|||
Skólar og stofnanir hafa fengið rithöfunda til að ræða ýmis mál, t.d. einelti og kynþáttamisrétti svo eitthvað sé nefnt. Rithöfundar eru glöggir á samtíma sinn og þjóðfélagið og hafa oft kynnt sér málin vel og skrifað um þau. Með vísun í verk sín geta þeir komið áreynslulaust að umræðuefninu. Verk rithöfunda eru margvísleg og þau má auðveldlega tengja samfélagsfræði, sögu, siðfræði, trúarbrögðum og líffræði.
rithöfundaheimsókn hreyfir við málum!