Europas Parkas er menningarsetur í Litháen þar sem í boði er fjögurra vikna dvöl sex sinnum á ári. Þar gefst listamönnum tækifæri til að kynnast menningu og listum í Litháen. Markmiðið er að þeir sem þarna dvelja geti notið dvalarinnar hver með sínum hætti, en aðstaða er fyrir 8 listamenn samtímis á menningarsetrinu. Boðið er upp á eins og tveggja manna herbergi með baði og þrjár máltíðir á dag. Dvölin er ekki ókeypis, en verðinu er stillt í hóf. Rithöfundar og þýðendur eru boðnir velkomnir í Europas Parkas. Reiknað er með að umsóknir berist tveimur mánuðum fyrir æskilegan dvalartíma sem getur verið frá 1. maí til loka október.
Nánari upplýsingar veitir forstöðumaðurinn Gintaras Karosas, Europas Parkas, Joneikiskiu k., 4013 Vilnius r., Lithauen. Sími/fax: (370 2) 652368, netfang: hg@europarkas.elnet.lt. Nánar >>