Rithöfundar og þýðendur geta sótt um dvöl í listamiðstöðinni Künstlerhaus Schloss Wiepersdorf í Þýskalandi. Listamiðstöðin er í gömlum herragarði þar sem rithöfundarnir Ludwig Achim von Arnim (1781-1831) og Bettina von Arnim (1785-1859) bjuggu í byrjun nítjándu aldar. Frá 1947 hefur rithöfundum og öðrum listamönnum staðið til boða að dvelja í listamiðstöðinni, en húsið var gert upp og opnað að nýju eftir umtalsverðar breytingar árið 1992. Wiepersdorf er 200 manna þorp skammt frá Werbig, u.þ.b. 70 km. fyrir sunnan Berlín. Frekari upplýsingar veitir Doris Sossenheimer, sími: 0049 33746/699-0, fax: 0049 33746/699-19, netfang: Schloss.Wiepersdorf@t-online.de. Nánar >>