Kjarvalsstofa í París er íbúð og vinnustofa sem ætluð er til dvalar fyrir íslenska listamenn. Dvalartími er yfirleitt miðaður við 2 mánuði. Húsaleigan er lægri en gengur og gerist í París. Umsóknum um dvöl í Kjarvalsstofu skal skilað til stjórnarnefndar Kjarvalsstofu, hjá Signýju Pálsdóttur, menningarstjóra, Ráðhúsi Reykjavíkur. Þar liggja einnig frammi umsóknareyðublöð og afrit af þeim reglum sem gilda um afnot af Kjarvalsstofu. Nánar >>