Listasetrið Leifsbúð, Tékklandi er ætlað til dvalar fyrir íslenska listamenn.
Húsið er í eigu Þóris Gunnarssonar og Ingibjargar Jóhannsdóttur og er staðsett á sveitasetri þeirra 50 km suður af Prag, Tékklandi. Sérlega rólegt og fallegt umhverfi.
Húsið er samtals ca. 180 fm. Skiptist í vinnustofu á neðri hæð og opnu alrými á efri hæð.
Svefnpláss fyrir tvo með tvíbreiðu rúmi, baðherbergi, eldhús og stofa.
Íbúðin er búin öllum nauðsynlegustu búsáhöldum, uppþvottavél, þvottavél, þurkara, sængurfatnaði m.m.
Lítil verönd útfrá stofu, arinn í vinnustofu, málaratrönur.
Tilgangur með starfrækslu Listasetursins er að gera listamönnum kleift að vinna að list sinni með því að veita þeim afnot af húsnæði í 1 - 3 mánuði í senn, þó er möguleiki á að semja um annað.
Þess er vænst að gestir setursins sjái sér fært að kynna list sína með einhverjum hætti á meðan á dvöl stendur.