Hús Júlíusar Bomholts, "Dikterhjemmet" í Sönderho á Fanö í Danmörku stendur til boða sem bústaður fyrir norrænan rithöfund með fjölskyldu. Húsinu er úthlutað til þriggja mánaða í senn með möguleika á framlengingu. Ekki þarf að borga húsaleigu, en borga þarf fyrir upphitun, rafmagn, síma og hreingerningu, auk þess sem íbúarnir bera ábyrgð á innanstokksmunum. Nánari upplýsingar fást hjá Centrabiblioteket for Ribe Amt. Umsóknir sendist til:
Bestyrelsen for Julius Bomholts hus, Centralbiblioteket for Ribe Amt, Nörregade 19, DK-6700 Esbjerg.