Vinnu- og orlofshús Rithöfundasambandsins á Eyrarbakka.
Norðurbær er byggður árið 1900 en hefur verið algjörlega endurbyggður. Aðkoma að húsinu er frá Túngötu en það tilheyrir húsaþyrpingunni sem kennd er við Einarshöfn og er í vestanverðu þorpinu rétt við Bakarísstíg sem liggur milli Túngötu og Eyrargötu.
Húsið er 37m² og þar er anddyri, stofa/eldhús, svefnherbergi og baðherbergi. Verönd er við húsið með borði, tveimur stólum og gasgrilli (geymt í kjallara þegar ekki í notkun). Lítill geymslukjallari er undir húsinu. Svefnpláss er fyrir 4 (jafnvel fleiri ef nauðsyn krefur). Tvíbreitt rúm í svefnherbergi, tvíbreiður svefnsófi í stofu og auka dýna í skoti við fataskáp. Í húsinu er skrifborð ásamt skrifstofustól, borðstofuborð og fjórir stólar. Sængur og koddar eru fyrir fjóra (sumt af því er undir rúminu), en sængurföt, handklæði, viskastykki og borðtuskur verða gestir að koma með. Í eldhúsinu er ísskápur, eldunarhella, örbylgjuofn, brauðrist, vöfflujárn, kaffivél, hraðsuðukanna, borðbúnaður og áhöld fyrir 6 manns. Í baðherberginu er vaskur, salerni og sturta. Í húsinu er sjónvarp með dvd-spilara og útvarp með geislaspilara. Enginn sími en hægt er að tengjast internetinu með adsl tengingu, þráðlausri eða með netsnúru.
Ætlast er til að gestir skili húsinu af sér hreinu og láti skrifstofuna vita ef aðkoma er ekki eins og vera ber. Meðan á dvöl stendur bera gestir ábyrgð á húsinu og öllum húsbúnaði.
Hjá bensínsölunni er stundum rekin lítil verslun með helstu nauðsynjum en henni hefur þó verið lokað af og til og erfitt að treysta á að þar sé opið. Í næsta nágrenni við Norðurbæ er veitingastaðurinn Rauða húsið sem tekur sérstaklega vel á móti gestkomandi rithöfundum. Bókasafn er að Túngötu 40, opið tvisvar í viku.
Skrifstofa RSÍ annast útleiguna á Norðurbæ til skuldlausra félagsmanna sambandsins. Húsið er í vikuleigu yfir sumarið (föstudagur til föstudags) og kostar vikan 9.000 kr. Vikuleiga haust, vetur og vor er kr. 6.000 en sólarhringsgjald 1.000 kr. Leiga greiðist við pöntun. Hægt er að greiða með kreditkorti eða millifæra á reikning RSÍ. Lykill sækist á skrifstofuna.
Nánari upplýsingar fást á skrifstofu RSÍ í síma 568 3190 eða í rsi@rsi.is Hér má sjá hvað er laust til áramóta: lausir dagar í Norðurbæ