
Sléttaleiti skilst mér rétt ei heiti;
betur færi, að Brattahlíð
bærinn nefndist sína tíð.
Vinnu- og orlofshús Rithöfundasambandsins í Suðursveit.
Húsið að Sléttaleiti í Suðursveit er gjöf Guðrúnar Sveinsdóttur í minningu foreldra sinna og bróður. En einnig til að heiðra minningu frænda sins Einars Braga skálds sem var hestastrákur í Sléttaleiti sumarið 1935. Sléttaleiti stendur í grýttri hlíð rétt tvo km austan við Hala (Þórbergssetur). Útsýni er fagurt austur til fjalla í Nesjum og út á veraldarhafið. Ef miðað er við gatnamót Grensásvegar og Miklubrautar í Reykjavík þá eru 381 km að bústaðnum.
Húsið er byggt 2003 og er u.þ.b. 60m², þar er stór forstofa (byggð 2006), stofa/eldhús, baðherbergi og rúmgóð efrihæð sem er eitt rými. Svefnpláss er fyrir 5 (til 8). Tvíbreitt rúm og annað 90 cm á svefnloftinu , tvíbreiður svefnsófi í stofu og 3 auka dýnur. Í húsinu er skrifborð ásamt skrifstofustól, borðstofuborð og fjórir stólar (+ 2 klappstólar). Sængur og koddar eru fyrir fjóra, en sængurföt, handklæði, viskastykki og borðtuskur verða gestir að koma með. Í eldhúsinu er ísskápur, eldunarhella, örbylgjuofn, brauðrist, vöfflujárn, handþeytari, kaffivél, hraðsuðukanna, borðbúnaður og áhöld fyrir 6 manns. Í baðherberginu er vaskur, salerni og sturta. Í húsinu er sjónvarp, dvd-spilari og útvarp með geislaspilara. Gasgrill og útihúsgögn.
Enginn sími eða internet-tenging enn sem komið er.
Ætlast er til að gestir skili húsinu af sér hreinu og láti skrifstofuna vita ef aðkoma er ekki eins og vera ber. Meðan á dvöl stendur bera gestir ábyrgð á húsinu og öllum húsbúnaði.
Næstu verslanir eru á austurleið í Vík (203 km að Sl) og Kirkjubæjarklaustri (132 km að Sl) en austar Höfn 62 km frá Sléttaleiti.
Skrifstofa RSÍ annast útleiguna á Sléttaleiti til skuldlausra félagsmanna sambandsins. Til að byrja með verður húsið leigt viku og viku og er gjaldið þá kr. 6.000 kr eða á sólarhring kr. 1.000.- Leiga greiðist við pöntun. Hægt er að greiða með kreditkorti eða millifæra á reikning RSÍ. Lykill sækist á skrifstofuna. Nánari upplýsingar fást á skrifstofu RSÍ í síma 568 3190 eða í rsi@rsi.is