Gestaíbúðir á Íslandi

Herhúsið á Siglufirði

Í Herhúsinu á Siglufirði er gestavinnustofa fyrir innlent og erlent myndlistarfólk, skáld eða aðra sem vinna að listsköpun. Herhúsið er allt nýuppgert að utan sem innan.  Vinnustofan er 70 fermetra salur með um 4 metra lofthæð. Þar er góður iðnaðarvaskur, trönur og vinnuborð og þægilegur sófi sem einnig má nota sem aukarúm.  Baðherbergið sem er á neðri hæð er með sturtu. Í turninum er björt stúdíóíbúð með tveimur rúmum. Í eldhúsinu er ísskápur, kaffivél, brauðrist, örbylgjuofn og tvær rafmagnshellur. Í húsinu er sjónvarp og útvarp með geislaspilara. Möguleiki er á þráðlausu háhraða ADSL sambandi með ótakmörkuðu niðurhali. Í salnum er hægt að halda sýningar, fyrirlestra og tónleika í lok dvalar. Herhúsið er í hjarta bæjarins og stutt í alla þjónustu, verslanir, þvottahús og veitingahús.

Heimasíða

Til baka
Prentvæn útgáfa


Rithöfundasambandið | Gunnarshúsi | Dyngjuvegi 8 | 104 Reykjavik | s: 568 3190 | fax: 568 3192  |rsi hjá rsi.is  | opið 10.00 - 14.00