Gestaíbúð er á neðri hæð húss skáldsins frá Fagraskógi að Bjarkarstíg 6, Akureyri. Íbúðin er ætluð rithöfundum og fræðimönnum til afnota í lengri eða skemmri tíma gegn vægu gjaldi, hámark einn mánuð í senn. Í íbúðinni eru: svefnherbergi, stofa, skrifstofuherbergi, eldhús og baðherbergi. Allur almennur húsbúnaður og lín er til staðar í íbúðinni, ásamt þráðlausri nettengingu. Nánari upplýsingar hjá Menningarmiðstöðinni í Listagili, Akureyri, s. 466-2609 og netfang listagil@listagil.is
Stofnunin hefur til umráða íbúð í húsnæði sínu fyrir fræði- og listamenn, íslenska sem erlenda. Um er að ræða íbúð á tveimur hæðum og er innangengt á vinnuloft Snorrastofu, þ.e. stórt bókasafn, tölvur og almenna vinnuaðstöðu.
Vinnu- og orlofshús Rithöfundasambandsins í Suðursveit
Húsið að Sléttaleiti í Suðursveit er gjöf Guðrúnar Sveinsdóttur í minningu foreldra sinna og bróður. En einnig til að heiðra minningu frænda sins Einars Braga skálds sem var hestastrákur í Sléttaleiti sumarið 1935.
Sléttaleiti stendur í grýttri hlíð rétt tvo km austan við Hala (Þórbergssetur). Útsýni er fagurt austur til fjalla í Nesjum og út á veraldarhafið.
Ef miðað er við gatnamót Grensásvegar og Miklubrautar í Reykjavík þá eru 381 km að bústaðnum.